Stéttarfélögin hafa heldur ekkert að gera þarna

Stéttarfélögin hafa ekkert að gera í stjórnum lífeyrissjóðum landsmanna því að stéttarfélögin eiga ekkert í þessum sjóðum.  Nauðungaráskrift að þessum sjóðum er bara svívirða og enn ein skattheimtan þar sem launamaðurinn hefur ekkert val um ávöxtun eða hvernig honum er stjórnað.

Ég myndi vilja getað valið á milli "samtryggingastjóðs" eða séreignarsparnaðar 100%.  Ég vildi að ríkissjóður byði uppá 100% öruggan sjóð / séreignarinnlán með lágri raunávöxtun (3,5% up)  til mótvægis sem vilja taka þátt í hlutabréfa / skuldabréfa spilavíti með ævisparnaðinn sem við erum skyldug að taka þátt í við núverandi aðstæður.

Sjóðsfélagar eiga að kjósa stjórn lífeyrissjóðanna á hverju ári í almennri kosningu, punktur og basta.


mbl.is Vilja atvinnurekendur burt úr stjórnum lífeyrissjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón og Sér Jón...

Ég, venjulegur Jón  skal kaupa lóðir / byggingarétt á sömu kjörum og elítunni, Séra Jón, býðst úr hendi ríkissjóðs eða á 2% vöxtum og óverðtryggt til 8 ára. 

Er það í boði?

"Það er hlutverk ríkisins að arðræna almenning og púkka undir aðalinn.  Geir Harðarson"


mbl.is Bjóða lóðir á lágum vöxtum og lengja byggingartíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helgi Hóseasson látinn

Helgi var hetja, hugsjónarmaður og var hinn sanni mótmælandi sem aldrei lét deigan síga.  Við þurfum á fleirum slíkum að halda sérstaklega nú á dögum þegar að okkur er sótt úr öllum áttum. Megi bölvaða hrokafulla presta pakkinu svelgjast á skyrinu og minnast Helga.

Blessuð sé minning hans.

 

 

Helgi Hóseasson látinn


Helgi Hóseasson lést á elliheimilinu Grund í morgun 89 ára að aldri. Helgi sem nefndur hefur verið mótmælandi Íslands fæddist í Höskuldsstaðaseli í Breiðdal þann 21. nóvember 1919. Hann var næstelstur fjögurra systkina. Frá þessu var greint í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Helgi var menntaður húsasmíðameistari, en þau réttindi hlaut hann árið 1941. Foreldrar hans voru þau Marsilía Ingibjörg Bessadóttir og Hóseas Björnsson.

Helgi var þekktur fyrir mótmæli sín allt frá árinu 1962 gegn meintu órétti sem honum finnst hann hafa verið beittur af íslenska ríkinu allt frá því að hann fæddist. Í seinni tíð hefur hann einnig mótmælt stuðningi Íslensks ríkisvalds við stríð og ójöfnuð.

Óréttlætið sem Helgi sagðist þurfa að líða fólst í því að hann gat  ekki fengið kirkju, dómstóla eða annað yfirvald til að rifta skírnarsáttmála sínum. Kirkjan og samfélagið vildu ekki viðurkenna að hann væri ekki lengur bundinn loforðum gefnum við skírn og fermingu. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og aðstoð lögfræðings fékk  Helgi aldrei kröfum sínum framgengt.

Helgi var einnig þekktur fyrir að hafa slett skyrhræringi á forseta Íslands, biskup og alþingismenn við þingsetningu árið 1972. Þegar Helgi var spurður í viðtali á Útvarpi Sögu í júní 2007 af hverju hann hefði skvett skyri en ekki einhverju öðru sagðist hann ekki hafa viljað skaða sjón mannanna með sýru eða öðru hættulegu. Seinna skvetti Helgi svo tjöru og ryðvarnarefni á alþingishúsið ásamt því að brjóta í því rúðu.

Árið 2003 kom út heimildarmyndin Mótmælandi Íslands, sem fjallar um Helga, eftir Þóru Fjelsted og Jón Karl Helgason. Myndin var tilnefnd til Eddunnar fyrir bestu heimildarmyndina sama ár.


Enn eitt þrefallt húrra fyrir útrásarvíkingunum...

"Það er hlutverk ríkisvaldsins að arðræna almenning og púkka undir aðalinn.  Þeim hefur aldrei tekist jafn vel upp og með IceSlave". Geir Harðarson
mbl.is Forsetinn staðfestir Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er alltaf spruningin um peninga

og ekkert annað.  Skiptir ekki máli hvort það sé hálft kíló af IceSlave gulli á hvern af 300 þúsund íslendingum eða yfirráð yfir olíu.
mbl.is Lockerbiefanga skipt fyrir olíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjármagnstekjuskattur var langt yfir 100% á síðasta ári - eignaupptaka!

Ef það á að skattleggja fjármagnstekjur einsog launatekjur þá er það besta mál ef hann lækkar þá í 37,2% úr langt yfir 100% sem hann var á síðasta ári.    Jóhanna kemur víða við til að hjálpa lítilmagnanum geri ég ráð fyrir.  Kannski fær maður fjármagns-tekju-leysisleysis-bætur ef höfuðstóllinn er að skreppa saman að raunvirði vegna lágra vaxta og verðbólgu?  Ég held að fjármálaráðherra sé kominn á hálan ís.

Ég hvet alla skattgreiðendur að kæra álagninguna í ár þar sem mikið af sparifé landsmanna rýrnaði að verðgildi og raunávöxtun var neikvæð en samt var fjármagnstekjuskattur lagður á.  Þetta er brot á eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar.  


mbl.is Fjármagnstekjur skattlagðar eins og laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er enn ekki sannfærður um að þeir hafi farið til tunglsins

og myndirnar af sem komu úr nýjustu græunni sem var að hringsóla um tunglið voru ekki sannfærandi.  Skugginn af "tunglarinu" sem varð eftir var í allt aðra átt en allir aðrir skuggar.  Þeir verða að fara að læra að nota PhotoShop blessaðir strákarnir hjá NASA.  Það verður gaman að sjá hvað þeir hjá stjörnufræðivefnum hafa að segja um þetta steingerða tré frá "tunglinu".  Lifið heil.


mbl.is Tunglgrjótið reyndist vera tré
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðbætur eru ekki tekjur sagði Pétur Blöndal

Vextir á innláns reikningum hækkuðu vegna þess að verðbólgan hækkaði.  Ávöxtun á óverðtryggðum innlánsreikningum var neikvæð vegna þess að verðbólgan var hærri en vextirnir.  Það er alveg á hreinu og Pétur Blöndal hefur sagt það á Alþingi að verðbætur séu ekki tekjur.  Vextir sem eru lægri en verðbólgan eru heldur ekki tekjur því að í raun er eign fólks að rýrna.  Samt er Tryggingastofnun að rýra kjör fólksins enn frekar með fáránlegum útreikningum.  Þessa glæpastarfsemi hjá TR og hjá Valdstjórninni verður að stöðva. 

Hins vegar voru margir sem áttu fé inni í peningamarkaðssjóðunum og fengu þá peninga greidda út.  Þá komu til greiðslu uppsafnaðir vextir (jafnvel fyrir mörg ár aftur í tímann) og reiknast sem tekur fyrir 2008.  Núna stija þessir peningar á lágum vöxtum og eru að brenna upp á verðbólgu bálinu nema að þeir séu inná verðtryggðum reikningum.

Ég vil nota tækifærið og hvetja alla íslendinga til að kæra álagningu skatta því að álagning fjármagnstekjuskatts þegar höfuðstóll rýrnar brýtur í bága við 72 grein stjórnarskrárinnar um eignarréttinn.  Með álagningu fjármagnstekjuskatts er verið að gera peninga fólks upptæka.  Það er megin inntak skattalaga að fyrst sé aflað tekna og þær síðan skattlagðar.  Höfuðstóll sem rýrnar getur ekki borið skatta. Enn og aftur, verðbætur eru ekki tekjur.  Vextir sem eru lægri en verðbólgan eru heldur ekki tekjur.

Í gamla daga var fjármagnstekjuskattur á vexti en sá skattur var lagður niður vegna þess að verðbólgan var hærri en vextirnir.  Verðbólgan á síðasta ári var rúm 18% en ávöxtun á bankareikningum var ca 15%.  Höfuðstóllinn rýrnaði þar af leiðandi um ca 3%.  Síðan er búið að leggja fjármagnstekjuskatt á rýrnandi höfuðstól.  KÆRA STRAX EN FRESTUR RENNUR ÚT Í LOK ÁGÚST.

Þetta littla blogg er bara smá vísbendingum um hvað er í aðsígi hjá Snjalla Geir.

 Lifið heil. 


mbl.is Vaxtahækkunin kann að skekkja útreikninga bóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...síðasti blóðdropinn sem mun fylla mælirinn

Ef það gengur eftir að "samið" verði um þessa skuld varúlfanna við gamla Búnaðarbankann þá mun það verða síðasti blóðdropi þjóðarinnar sem þessir varúlfar gera sér að góðu því að þá hefur samkomulaginu um samfélagið sem við búum í endanlega verið sagt upp. Fólkið í landinu mun ekki láta bjóða sér þetta  lengur.  Búsáhalda byltingin mun verða einsog skólaleikrit í samanburði við það sem tekur við.

Hvernig má það vera að fjölskyldur með börn eru og munu verða borin út á götu á meðan mennirnir sem komu þóðinni á vonarvöl ganga um sem frjálsir menn með milljarða eignir út um allan heim og þurfa ekki einusinni að borga sínar skuldir einsog við hin. Þeim hefur enn ekki verið birt stefna....?

Hver eru viðbrögð ríkisvaldsins? Jú, það eru til peningar til að kaupa Rafstuð eða "Teaser" byssur og brynvarða trukka til að láta liðið kenna á því.  Draslið er á leiðinni til landsins eftir mínum heimildum.  Hvert verður fyrsta fórnarlamb lögreglunnar?  Mun útförin fara fram í "kyrrþey"?

 


mbl.is Varar við borgarastyrjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir fóru aldrei til tunglsins....

Ef þeir fóru einhvern tíman til tunglsins þá vill ég fá að sjá live myndir úr þessum gervihnetti þar sem sjást ummerkin um "geimfarana" og "búnaðinn" sem þeir skildu eftir.  Til dæmis væri gaman að sjá farartækið sem þeir þóttust keyra um tunglið. 

En það verður bið á því að ég fái að sjá slíkar myndir þar sem það var aldrei farið til tunglsins.


mbl.is Á braut um tunglið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband