9.10.2009 | 12:36
Skýlaust brot Valdstjórnarinnar á almennum borgara
Þessi frétt sýnir í hverskonar bananalýðveldi við búum í á Íslandi. Enn og aftur fer Valdstjórnin út fyrir ramma laganna og brýtur á almennum borgara. Ef við byggjum við réttarkerfi þá færu þeir starfsmenn Valdstjórnarinnar sem brutu lögin í fangelsi. Hvar er ábyrgð Valdstjórnarinnar? Hvar er refsiramminn? Nei lesandi góður, þú býrð á þræla galeiðunni Íslandi þar sem þinn réttur er enginn og réttur Almættisins - Valdstjórnarinnar er algjör. Þú ferð í fangelsi þeir ekki. Jafnræðisregla hvað? Stjórnarskráin er fótum troðinn á hverjum degi og það er bara einstaka hetja sem kemst svo langt að klára máið fyrir Hæstarétti. Hinir sitja eftir með sárt ennið. Lifið heil.
Fær 25 milljónir í bætur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.