Hvaða bankaleynd?

Af hverju er ekki verið að ransaka starfsmenn bankana þegar þeir fóru yfir háar innstæður í sínum bönkum og hringdu síðan í fórnarlömbin og báðu þau um að TAKA PENINGANA ÚT ÚR BANKANUM og kaupa í sjóðum.  Sjóðirnir eru reknir á sér kennitölum og eru þar af leiðandi annar lögaðili.  Bankinn er að biðja fólk um að hætta viðskiptum við bankan og fara til annars aðila.  Mér finnst engu máli skipta að bankinn hafi haft umsjón með sjóðunum. Fórnarlömbin stóðu oft í stappi við starfsmennina til að halda peningunum inn í bankanum.  Sögur fara af því að starfsmennirnir hafi verið á prósentum við þessa iðju.  Núna gráta starfsmennirnir störfin og fórnarlömbin fjármunina sem töpuðust.  AF HVERJU ER ÞETTA EKKI RANSAKAÐ??? Á EKKI BANKALEYND VIÐ ÞEGAR STARFSMENN BANKANNA NOTFÆRA SÉR TRÚNAÐARUPPLÝSINGAR MEÐ ÞESSUM HÆTTI.
mbl.is Brutu þau bankaleynd?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ha Ha ha.... þvílíkur brandari

Siðblindur fyrirgreiðslupólitíkus sem stóð að því að veita ólöglegum innflytjanda íslenskan ríkisborgararétt eftir 15 mánaða dvöl í landinu.  Ætlar einhver að kjósa þetta lið.


mbl.is Nýrri kynslóð treyst til verks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjaldþrota lífeyrissjóðakerfi

Lífeyrissjóða kerfið einsog það er sett upp í dag er gjaldþrota.  Skylduaðild að því er hrein skattheimta og eignaupptaka.  Við erum með tvöfalt kerfi, bæði belti og axlabönd, bæði gjaldþrota. Ríkissjóður er gjaldþrota og lífeyrissjóðirnir geta eki staðið undir því hlutverki sem lagt var upp með.  Þegar ég verð 67 ára og ætla að tala út þessar fáu krónur sem mér eru sagðar vera til í dag, verður ekkert eftir.  Sjóðir eru sukk og svínarí.  Þeir sem reikna dæmið til enda fá alltaf betri útkomu með því að leggja allt framlagið 12% inná verðtryggða reikning með vöxum.  Því miður er búið að fara alla leið til dómstóla í Evrópu og fá það staðfest að þetta eigi að vera svona.  Ég vil þá fá frá tryggingar frá sömu aðilum um að ég fái peningana mína til baka sem ég verð að borga nauður viljugur.  Feitir forstjórar tapa svo 200 milljörðum á ofur launum og keyra um á lúxuskerrum.  Raun ávöxtun uppá 1,7% undanfarin ár er einstaklega slakur árangur þegar banka bækur og ríkistryggðir pappírar hafa gefið langt um betri ávöxun.  Til hvers að vera að borga 2000 milljónir í þetta lið sem nær ekki betri árangri.  Þetta sukk og svínarí kemur frá Alþingi og þingmönnum sem finnst það bara sjálfsagt að setja lög sem brjóta í bága við Stjórnarskránna.  Ætlar einhver að kjósa þetta lið?  Vissulega hefur þetta kerfi sína kosti á meðan það virkar og það eru full frískir menn á yfir 400 þús kr launum frá lífeyrissjóðum af því að þeir hafa verið úrskurðaðir öryrkjar.  Ríkið myndi alldrei borga fólki slíkt.  Einnig eru þetta samtryggingar kerfi gott ef maður ætlar að verða mjög gamall.  Sparnaður af venjulegum launum í ca 40 ár dekkar ekki framfærslu í önnur 40 ár. 
mbl.is Erfitt framundan hjá lífeyrissjóðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

og hvað með neikvæðu ávöxtunina á bankareikningum

Talsmaður sparnaðar og ávöxtunar á sparifé forðast það einsog heitan eldinn að tala um neikvæða ávöxtun á sparifé sem var á óverðtryggðum innlánsreikningum.  Þegar meðal vextir voru á bilinu 15 til 17 prósent en verðbólgan 18,6% skv neystluvísitölu og ca 26% skv byggingavísitölu. 

Að maður tali nú ekki um fávitaskap þessara manna á þingi og hjá hinu opinbera að halda því fram að verðbætur séu tekjur.  Það er sjálfsagt að skattleggja raunávöxtun á sparifé en að skattleggja  vexti  sem ekki ná að halda í við verðbólguna er ekkert annað en eignaupptaka og brot á stjórnarskránni.  Ég by ekki á Akureyri og ferðast lítið um á reiðhjóli en ég held að við þurfum fleiri slíka menn til koma hlutunum í rétt horf.

Þeir sem hafa sparað skynsamlega og eiga fé inná banka í dag en lenda í því að vera atvinnulausir eru reiknaðir áætlaðir 18% vextir á innstæður óháð raunverulegum vöxtum og án þess að taka tillit til verðbólgunar. 

Það er hutverk ríkisvaldsins að arðræna almúgann og púkka undir auðvaldið.  Þeim hefur alldrei tekist jafn vel upp eisog síðastliðin ár.  

Lengi lifi þræla galeiða flokksræðisins og klíkuveldisins Íslands.

 


mbl.is Eignahrap einstaklinga mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sér grefur gröf sem grefur...

og það segir allt sem segja þarf.
mbl.is Stefna brást ekki, heldur fólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

mbl.is lá niðri í morgunn, engin frétt samt

í morgun lá mbl.is niðri.  merkilegt að það koma eingin frétt um málið.  kanski íslandsbanki hafi gelymt að borga af léninu.....? 
mbl.is Gmail þjónustan liggur niðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjóðir eru sukk og svínarí.

Sjóðirnir hjá Ávöxtun voru sukk og svínarí.

Sjóðirnir hjá Fjárfestingafélaginu voru sukk og svínarí.

Framsæknhlutabréfasjóðurinn hjá Búnaðarbankanum fór hressilega niður í internet bólunni.

Allir sjóðirnir hjá íslensku fjármálafyrirtækjunum töpuðu 2008.

Gift sjóðurinn er horfinn og gott betur, 30 milljarðar í vaskinn á einu ári.

 SJÓÐIR ERU SUKK OG SVÍNARÍ MEÐ ALMANNAFÉ.

SÖMULEIÐINS RÍKISSJÓÐUR. 

 

 Hvenær ætlar fólk að fatta þetta?

 


mbl.is Ítreka kröfur um bætur vegna peningabréfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byggingavísitalan hækkar um 26,7% á 12 mánuðum

Af hverju er Mogginn ekki með þessar tölur inn í fréttunum líka.  Verðbólgan frá mánuði til mánaðar er einnig um 26%.  Enn það hljómar betur að nota 12 mánaða tímabil því þá er prósentan lægri.   Alltaf þarf Mogginn að birta hálfan sannleikann.  Koma bara með allan pakkann, takk fyrir.
mbl.is Verðbólgan nú 17,1%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðverjar hvað? Bíðum aðeins...

Voru bankar Kaupþings ekki dótturfélög og lutu þar af leiðandi fjarmálaeftirliti og lögum í Þýskalandi? Þar af leiðandi koma þessar innstæður íslenskum yfirvöldum ekkert við.   Vour bankar Kaupþings  útibú...eða hvað???   Er búið að ljúa okkur full eða hvað?  Eigum við, skattgreiðendur á Íslandi, bara að borga allan pakkan, þessa 12.000.000.000.000 kr. (tólf þúsund milljarða króna)  Var Kaupþing með útibú í Þýskalandi eftir allt saman. 

Fyrst sagði ég þegar bankakreppan skall á alvöru: "Ég er ekki svartsýn, ég sé svarthol".  Svo þegar leið á sagði ég "Lengi getur vont versnað" en þegar Steingrímur J sagði það sama á Alþingi þá varð ég að taka upp nýtt slagorð: "Það sér ekki fyrir endan á vitleysunni". Svo kom 365, í dag TM og það verður víst eitthvað annað í komandi viku.  Það á víst vel við í dag.  Næsta slagorð verður: "Við munum ekki geta borgað allt saman upp áður en sólin brennur út".  Sá sem segir að sólin muni alltaf koma upp að morgni fer nefnilega með fleipur því að endanum mun sólin brenna út og verða að svartholi.  Það er greinilegt að ég sé langt inn í framtíðina.


mbl.is Þjóðverjar lána Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann vill ekki tala um bindiskylduna

Með því að lækka bindiskylduna og afnema hana síðan fengu bankarnir heimild frá Davíð Oddsyni og engum öðrum til að lána út endalaust.  Og bankarnir gerðu það!  Því fór sem fór.  Bindiskyldan er miklu áhrifameira stjórntæki á peningamagn í umferð heldur en stýrivextir og verðbólgumarkmið.  Með bindiskyldunni verða til hömlur á útlán og peningar hlaðast inná reikning hjá Seðlabankanum.  Bindiskyldan er handbremsan á útlán.  Davíð tók handbremsuna af en tuðaði í sínu horni um hvað bankarnir væru að þenjast út.  Hann hefði átt að taka í handbremsuna og koma í veg fyrir alla þessa útþenslu.  Það er ekki af ástæðulausu að fólk vill Davíð út úr Seðlabankanum.  Hann og Sjálfstæðis klíkan undirbjó jarðveginn fyrir bankanna sem hefur komið okkur í koll núna.  Lifið heil.
mbl.is Uppskeran eins og sáð var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband